Hvar var Hafró þegar Hringormanefnd var upp á sitt besta?

Hvar var Hafró þegar Hingormanefnd nærri eyddi útsel og landsel í nafni baráttunar við hringorma í þorski?  Þá sagði Hafró ekki neitt.  Hafró er alveg sama um sjómenn og byggðirnar í landinu.  Þeirra aðall er að fá að deila og drottna.  Helsta verkefni þeirra er að sannfæra stjórnvöld um þörfina á fjárveitingum til stofnunarinnar og helsta tækið er að gera skýrslur þar sem veiðum, öðrum er þorskveiði er lýst sem einhverjum hryllingi.  Þeir ættu frekar að eyða orku sinni í að krefjast þess að sjómenn komi með meðafla í land til nýtingar, í staðinn fyrir að eyðileggja fyrir sjómönnum og byggðum landsins.


mbl.is Svara gagnrýni formanns LS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geirfinnur - Osama

Þetta er eins og í Geirfinnsmálinu, - ekkert lík. Hver drap hvern, - og hvenæa?


mbl.is Hver drap bin Laden?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mun "landbúnaðarmafían" eyðileggja þetta sláturhús?

Mikið er ánægjulegt að frétta af sjálfsbjargarviðleitni íbúa og bænda í sveitum landsins.  Nú er bara að vona "landbúnaðarmafían", ríkisstjórnin, bændasamtökin, yfirdýralæknir og heimskt fjölmiðlafólk komi ekki og eyðileggi allt saman.  Landsmenn eiga nefnilega ekki öðru að venjast.

 


mbl.is Fyrsta handverkssláturhús landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Fjölga flugum"

Andskotinn! Eins og hér sé ekki nóg af flugum?

"Breska flugfélagið easyJet mun horfa til þess að fjölga flugum til Íslands enn frekar á komandi árum ef eftirspurnin heldur áfram að vaxa eins og hún hefur gert".

Þannig hljómaði fréttin í upphafi, en nú er hún svona: " Breska flug­fé­lagið ea­syJet mun horfa til þess að fjölga ferðum til Íslands enn frek­ar á kom­andi árum ef eft­ir­spurn­in held­ur áfram að vaxa eins og hún hef­ur gert".  

Gott að vera laus við þessar flugur. 


mbl.is Stefna á enn fleiri áfangastaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sóley mun ekki starfa með Framsókn.

"Nei, kemur ekki til greina", er hér haft eftir Sóleyju Tómasdóttur þegar hún er spurð um hugsanlegt samstarf við Framsóknarflokkinn.  Einhvern veginn held ég að það væri skynsamlegast fyrir Samfylkinguna að ræða við Píraddan strax. Eru það ekki málefnin sem skipta Sóleyju máli? Nýr meirihluti mun væntanlega gera með sér málefnasamning, - er það ekki það sem í honum stendur sem skiptir máli? Ætlar Sóley að standa föst á öllum þeim atriðum sem VG lagði fram fyrir kosningar? Þarf ekki að semja? Svo held ég að Piraddinn og Björt framtíð ættu að skoða samstarf við Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn. 
mbl.is Vill ekki starfa með Framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins náði lögreglan númerinu á bílnum

Mikið var nú gott að lögreglan náði loks númerinu á þessum bíl.  Það er náttúrlega nauðsynlegt að ná númerinu svo hægt sé að rukka svona þrjóta. Lögreglan ætlar ekki að taka þessa menn í sálfræðimeðferð, - það var ekki meiningin.  Hvort einhver er slasaður eftir eltingarleiki er náttúrlega algjört aukaatriði.
mbl.is Flúði lögreglu og lenti í árekstri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Selja auðlindir þjóðarinnar?

Hûn lítur sakleysislega út hugmyndin að selja lífeyrissjóðunum hlut í Landsvirkjun. Þá gætu sjóðirnir fjárfest í einhverju bitastæðu hér innanlands of tryggt lífeyri komandi kynslóða. En sá böggull fylgir skammrifi að þar með eru hlutirnir komnir á almennan markað og áður en við vitum er Landsvirkjun komin í hendurna á aðilum sem hugsa bara um eigin hag, en ekki þjóðarinnar. Bjarni veit hvernig þetta er og því miður virðast einkahagsmunir hans og hans fjársterku vina vera ofar hag þjóðarinnar.
mbl.is Áhugasamir um kaup í Landsvirkjun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórn ISAVIA skrifaði undir

Var það ekki stjórn ISAVIA sem skrifaði undir og samþykkti kröfur flugvallarstarfsmanna? Sérkennileg fyrirsögn að tala um að flugvallarstarfsmenn hafi skrifað undir., eins og þeir hafi verið þvingaðir til einhvers.
mbl.is Flugvallarstarfsmenn skrifuðu undir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki kominn tími til að leggja Haftró niður?

"ef þessi síld hefði ekki skilað sér hefði þurft að taka tillit til þess í stofnmati, sem hefði síðan leitt til ráðgjafar um minni veiði", segja vísindamenn Hafró.  Eru þetta öll "vísindin"? Byggjast þau á því sem ekki er vitað? Hafa menn ekki enhverja uppsafnaða reynslu og þekkingu á Hafró til að bera? Það eru svona setningar sem sannfæra mann um það að við við getum sparað við okkur að eyða peningum í þessa stofnun.
mbl.is Týnda síldin fundin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Plastið er ekki vandamál, heldur fólk.

Umbúðir úr plasti eru ekki vandamál, heldur hvernig farið er með plastið.  Það er ekki vandamál að fólk noti plastpoka undir rusl sem er urðað í Álfsnesi. Það er hins vegar vandamál að sumir hriða ekki um umbúðir hvers konar úr plasti, - sem fá að fjúka um allar tryssur og sumir henda plasti í sjóinn.  Vandamálið er ekki plastið, heldur fólk.  Það á að banna slíkt fólk.  Og það ætti líka að banna alþingismenn sem eyða tíma Alþingis í rugl eins og það að ætla að banna umbúðir úr plasti. 


mbl.is „Stórkostleg umhverfisvá“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband