Sóley mun ekki starfa með Framsókn.

"Nei, kemur ekki til greina", er hér haft eftir Sóleyju Tómasdóttur þegar hún er spurð um hugsanlegt samstarf við Framsóknarflokkinn.  Einhvern veginn held ég að það væri skynsamlegast fyrir Samfylkinguna að ræða við Píraddan strax. Eru það ekki málefnin sem skipta Sóleyju máli? Nýr meirihluti mun væntanlega gera með sér málefnasamning, - er það ekki það sem í honum stendur sem skiptir máli? Ætlar Sóley að standa föst á öllum þeim atriðum sem VG lagði fram fyrir kosningar? Þarf ekki að semja? Svo held ég að Piraddinn og Björt framtíð ættu að skoða samstarf við Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn. 
mbl.is Vill ekki starfa með Framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Helsta stefnumál framsóknarforystunnar í Reykjavík er ekki þesslegt að einhverjir fáist til að starfa með þeim.

Hábeinn (IP-tala skráð) 1.6.2014 kl. 16:14

2 identicon

Hábeinn- ert þú hlyntur því, að fjarlægja flugvöllinn?

Hvað á að koma í staðinn?

Ómar R. er eini kratinn sem vill halda flugvellinum og veistu af hverju? Jú, hann er eini kratinn sem veit um hvað málið snýst.

Hann styður ósjálfrátt tillögur Framsóknar í Reykjavík.

Valdimar Jóhannsson (IP-tala skráð) 1.6.2014 kl. 17:00

3 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Víða í nágrannalöndum okkra sammælast allir virðulegir stjórnmálaflokkar um að starfa ekki með rasistaflokkum eins og Framsólnarflokkurinn er nú orðin. Vonandi gera flokkar hér á landi það sama. En Sóley á heiður skilið fyrir að vera fyrst til að taka þá afstöðu.

Sigurður M Grétarsson, 1.6.2014 kl. 17:37

4 identicon

Rasistaflokkum? Hvað áttu við? Ef þú ert að tala um þá flokka sem vilja reyna að hefta útbreiðslu islam þá er ég ekki að átta mig á þér. Islam hefur ekkert með kynþætti að gera. þetta eru viðbjóðsleg trúarbrögð eða öllu heldur stjórnmálasamtök sem vilja breiða út hatur á samkynhneigðum og konum ásamt öllum þeim sem ekki eru múslimar. Að fá svona hryðjuverkahreiður hér í borgina væri skelfilegt bara.

þarna fá þessir skeggapar að predika sínar miðaldaskoðanir og kvennhatur, í nafni lýræðis sem þeir sjálfir vel að merkja leggja hatur á lika. Íslam og allt sem þeim stjórnmálasamtökum tengist ætti bara að banna með öllu á vesturlöndum og vísa því fólki sem aðhillist þennan óþvera beina leið úr landi. Og þetta er ekki EKKI rasismi hjá mér. Ekki frekar en við leyfum ekki nasistaflokk hér.. En það væri kannski rasismi að banna þann flokk?

ólafur (IP-tala skráð) 1.6.2014 kl. 20:07

5 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Þvílíkt og annað eins rugl hjá þér Ólafur. Islam er ekkert annað en trúarbrögð rétt eins og Kristni og hvorki betri né verri en Kristni. Vissulega eru þar öfgamenn innan um rétt eins og meðal Kristinna safnaða en það á ekki við um Félag Múslima sem sækist eftir þessari lóð. Söfnuðir eins og Krossin og Votta Jehóva hér á landi eru miklu meiri öfgasöfnuðir og þar eru konur líka kúgaðar.

Þetta sem þú lætur hér út úr þér er ekkert annað en rasistaabull.

Sigurður M Grétarsson, 3.6.2014 kl. 08:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband