29.10.2008 | 11:01
Nýja ríkisstjórn?
Ráðamenn þjóðarinnar eru ábyrgir fyrir þeirri stöðu sem upp er komin. Þeir virðast hins vega ekki ætla að axla þessa ábyrgð. Talið er að 70% fyrirtækja landsins sjái fram á rekstrarstöðvun. Flest allar ákvarðanir stjórnvalda eru vanhugsaðar. Það er eins og þeir hafi aldrei heyrt orðatiltækið "í upphafi skal endirinn skoða".
Við þurfum nýja ráðamenn. Við þurfum kosningar strax. Við þurfum ríkisstjórn sem semur við ESB um aðild að myntbandalagi Evrópu. Til bráðabirgða þurfum við að semja við Noreg um fá að norsku krónuna, -við þurfum engan að spyrja um það nema Norðmenn. Samfylkingin þarf nú að viðurkenna að þetta gangi ekki lengur og á að taka þá ákvörðun að slíta stjórnarsamstarfinu. Þeir munu ekki tapa á því.
Engin áhrif á Iceland Express | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:34 | Facebook
Athugasemdir
Lestu um það þessa "hringrás" hérna
Sævar Einarsson, 29.10.2008 kl. 11:27
Sæll Kjartan.Tek undir með þér.Kvitta svo hér fyrir mörg"innlit"Kært kvaddur
Ólafur Ragnarsson, 31.10.2008 kl. 17:32
Þjóðstjórn strax.
Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 02:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.