Er starfsemi Hjallastefnunnar ólögleg?

Það þykir mér tíðindum sæta að það sé álitið löglegt að einkastofnun megi reka grunnskóla.  Var það ekki upphlaupið hjá menntamálaráðuneytinu að það væri bæði ólöglegt og til óþurftar að einaaðili sæi um grunnskólakennslu og rekstur?  Hjallastefnan rekur grunnskóla og leikskóla annarsstaðar í samfélaginu og maður spyr þá hvort sú starsemi sé þá ólögleg?
mbl.is Sömdu í trássi við lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðbólgan og verðtryggingin

Víst er tíðin vond og stríð

vetur líður strangur.

Eykur kvíða ár og síð

útreikníngur rangur. 


mbl.is Leiga á bankahólfi hækkaði um 166%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orðhengilsháttur Sjálfstæðismanna.

Hvað ætli Sjálfstæðisflokksmenn eigi við þegar þeir tala um afskriftir? Er ekki verkefnið að skila til baka ofreiknaða hækkun á höfuðstól ibúðalána? Flokkast það undir afskriftir? Vonandi þurfum við ekki að treysta á skilningsljóa forystumenn Sjálfstæðisflokksins til fá leiðréttingu á höfuðstóls útreikningi verðtryggingarinnar, - sem er ekkert annað en svindlútreikningur. Vonandi vinnur almenningur málið fyrir dómstólum og fær leiðréttingu sem miðast við að forsendur greiðslumats lána verð látin gilda.
mbl.is Leggjast gegn afskriftum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni skilur ekki að verðtryggingarformúlan er svindlreikningur

Það var ekki við því að búast að formaður Sjálfstæðisflokksins kæmi með tímamótatillögu um aðgerðir til leiðréttingar á verðtryggðum lánum, enda hefur ekki örlað á skilningi á grundvallaratriðum vandans hjá Sjálfstæðisflokknum á þessu kjörtímabili.

Kannski skilur Bjarni ekki að það er vitlaust reiknað.  Hann er einn af svo mörgum valdamönnum þessa samfélags sem kann ekki að setja sig í annarra spor til að skilja vandann. En svo getur verið að hann viti allt um þetta en hafi ekki siðferðislegan skilning á því að það sé rangt að hafa af fólki eignir þess með klækjum.


mbl.is Vilja endurskipuleggja íbúðalán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðir embættismenn, en lélegir hugsjónamenn

Þessir Alþingismenn sem nú sitja væru góðir embættismenn.  Þeir eru tilbúnir að gera eitthvað þegar þeim er bent á að kannski séu til reglur sem þurfi að fara eftir.

Á Alþingi vantar hugsjónafólk.  Fólk sem breytir reglunum að eigin frumkvæmi. Fólk sem skilur að reglurnar eru til að þjóna því lífi sem við viljum lifa, en ekki öfugt.

Helgi Hörvar hefur nú í 4 ár horft á lánastofnanir ræna stærstum hluta af eignum fólks.  Nei,  hann hafði ekki burði til að gera neitt í málinu fyrr en núna, - af því að kannski er það bara ólöglegt að nota svindlútreikninginn á neysluverðsvísitölunni og verðtryggingunni til að hækka upprunalegan höfuðstól íbúðalána?


mbl.is Verða að upplýsa lántakendur betur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru gengistryggð lán ekki örugglega ólögleg.

"verðtryggingin ekkert annað en léleg hermun [eftirherma] af gengistryggingu" segir Ársæll Valfells. 

Eru gengistryggð lán ekki örugglega ólögleg. 

Er ekki kominn tími á að stjórnvöld og fjármálastofnanir viðurkenni mistök sín við útreikninginn á verðtryggingunni og ólöglegum áhrifum hennar á höfuðstól verðtryggðra lána?


mbl.is Regluleg áföll vegna verðtryggingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fer Mogginn vísvitandi með rangt mál?

"enda skulda Íslendingar þeim háar fjárhæðir vegna Icesave-málsins." - er það? Var það ekki alveg örugglega banki í einkaeigu sem bjó til þessa skuld? Var íslenska þjóðin ekki örugglega búinn að segja að hún ætlaði ekki að taka á sig þessa skuld? Á ekki bara að standa þarna "íslenskir aðilar" í staðinn fyrir "íslendingar"? Standi þetta þessum orðum í hinni erlendri frétt, væri þá ekki rétt að Morgunblaðið minnti á það að Íslendingar væru jú búnir að hafna slíkum málatllbúnaði?
mbl.is Vilja rafmagn upp í Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ert þú níðingur?

"Heimild til að halda níðingum ótímabundið eftir afplánun"
"Já, blessaður og sæll ert þú níðingur, -já blessaður". Það mætti halda í allri þessari umfjöllun um brot gegn börnum, að níðingar séu starfsstétt. Það er talað um níðinga, eins þeir séu með einhvers konar starfsvettvang og réttindi til að mega kallast níðingar. Hverjir eru þessir menn? Ef þetta eru einungis þeir sem hafa þegar verið dæmdir fyrir brot gegn börnum þá er félagaskráin væntanlega stutt? Væri þá ekki bara hægt að birta nafnaskrána?
Eða eru menn að tala til þeirra sem hafa brotið af sér og ekki hefur komist upp um? Þarf þá ekki að tala til þeirra á einhvern sérstakan hátt?
Eða eru menn að tala um alla þá sem hugsanlega eiga eftir að brjóta af sér? Er hægt að tala til þeirra?
mbl.is Heimild til að halda níðingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig væri að leiðrétta rangan fréttaflutning ótilneyddur?

Mikið væri nú gott að hafa fjölmiðladómstól sem hefði það vald að geta skipað fjölmiðlum að leiðrétta ranga frétt og endursegja, með jafnmörgum orðum og jafnstórri fyrirsögn, á sama stað í blaðinu eða dagskránni.  Þá myndu blaðamenn DV hugsanlega vera lausir við einhverja stefnuna sem hrjáir þá nú.

Það er mjög sérkennileg fjölmiðlamenning á Íslandi, en þar er ekki til siðs að leiðrétta rangan fréttaflutning.


mbl.is Snýst um að valda okkur tjóni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoðanapistlar DV

"Þetta er skoðanapistill sem lýtur öðrum lögmálum en almennar fréttir", segir formaður Blaðamannafélags Íslands um skrif í DV sem Bakkavararbræður hafa kært. En er það svo? Því miður er ýmislegt fullyrt í DV sem um fréttir sé að ræða en ekki skoðanir blaðamanns. Gott væri að DV menn gerðu framvegis mun á sanneikanum, kjaftasögum og sannfæringu blaðamanna eða skoðunum. DV hefur staðið sig vel í því að grafa upp spillinguna í samfélaginu og óréttlætið sem henni fylgir. Þeir hljóta að geta orðað skrif sín þannig að ekki fari á milli mála hvað sé satt og hvað sé ágiskun eða ályktun.
mbl.is „Eðlileg umræða þögguð niður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband