Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

Misskilið hlutverk

Væri ekki tilvalið fyrir Lyjastofnun að semja við læknin í Svíðþjóð um að Lyfjastofnun fái upplýsingar um lyfin sem hann útvegar íslendingum og geti þannig lagt blessun sína yfir lyfin og vottað að þau séu rétt afgreidd samkvæmt lyfseðlunum?
mbl.is Lyfjastofnun telur vefsíðuna minlyf.net vera ólöglega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rannsóknir Hafró

Nú hefur Hafrannsóknarstofnun hins íslenska ríkis komist að enn einni niðurstöðunni um það hvernig megi "byggja upp" þorskstofnin við Ísland.  Lagt er til að veiða 130 þús. tonn á næsta fiskveiðiári.  Ríkisstjórnin hefur tekið þá ákvörðun að fara eftir þessum tillögum. 

Á sama degi og ákvörðun er tekin lýsir forstjóri hafrannsóknarstofnunarinnar því yfir að hann vilji efla rannsóknir í hafinu kringum landið.  Maður spyr:  Voru tillögur stofnunarinnar ekki byggðar á nægilega góðum rannsóknum?  Er kannski ekki alveg víst að þorskstofnin muni "byggjast upp"?  Hvað er það sem forstjórinn vill rannsaka betur?  Er hann að ímynda sér að með meiri rannsóknum megi komast að annari niðurstöðu um hversu mikið megi veiða af þorski árlega?

Það er eitthvað mjög undarlegt í gangi í samfélagi sem leggur heilu byggðarlögin í rúst út á takmarkaðar rannsóknir og vafasamar rannsóknarniðurstöður.


"Hrossabrestir"

Framsókn er enn við sama heygarðshornið.  Þeir halda enn að hægt sé að búa til störf hvar sem er.  Nú á að búa til störf í sjávarbyggðum sem komi í staðinn fyrir störf í sjávarútvegi og vinnslu.  Þegar þeim mistókst sem mest með landbúnaðinn héldu þeir að hægt væri í sveitum landsins að búa til störf óskyld landbúnaði.  Tillögur komu um framleiðslu hrossabresta.  Lagður var peningur í saumastofur og allskonar handverk, en ekkert dugði.

Samfylkingin hefur nú tekið við af Framsókn í vitleysunni með Sjálfstæðisflokknum.  Þessir flokkar halda að inn til dala og fjarða sé hægt að búa til störf á samkeppninsmarkaði.  Því miður hafa þeir rangt fyrir sér.


mbl.is Framsókn vill efla rannsóknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Mótvægisaðgerðir"

Einhver undarlegasta hugmynd síðustu vikna er um einhverskonar mótvægisaðgerðir vegna niðurskurðar á leyfðum þorskafla.  Hugmyndin er sú að þeir sem búa í sjávarplássunum muni geta snúið sér að einhverju öðru en veiðum og vinnslu sjávarafla.  Því miður er ekki hægt að breyta eðli sjávarplássa.  Sjávarpláss byggjast upp vegna nálægðar við fiskimið.  Ef ekki má veiða á þessum miðum þá er grundvöllur þeirra brostinn.  Atvinnuöryggið byggist á þessu.  Fólk vill búa við atvinnuöryggi og einhver tilbúin störf sem hægt er að stunda með meiri hagkvæmni annarsstaðar duga ekki og þóknast engum. 

Nú verður þorskaflinn á næsta veiðiári 130 þús. tonn, -nær hefði verið að auka hann í 260 þús. tonn.  Það þarf að grisja skóginn, beita móann og skera þangið. Sjórinn er fullur af fiski og það þarf að veiða úr honum.  Hvar ætla íslensk stjórnvöld með Hafró í farteskinu að enda þessa fáránlegu tilraunir sínar?  Kenningar Hafró um lífríkið í sjónum eru rangar, rannsóknirnar ónógar og allar tilraunirnar með "uppbyggingu" þorskstofnsins hafa mistekist.  Hvað ætla íslensk stjórnvöld að gera ef Hafró kemur enn og aftur eftir einhver misseri og segir að nú þurfi að minnka veiðina enn og aftur og í þetta sinn niður í 100 þús. tonn, því samkvæmt "mælingum" þurfi að minnka veiðina til að "byggja upp" stofninn?

Íslensk stjórnvöld og Hafró eru á villigötum.  Kenningarnar eru rangar.  Meintur aflabrestur er ekki af mannavöldum.  Það þarf að snúa við blaðinu, -leyfa frjálsar veiðar, hætta að takmarka aflamagn, en stýra því hvar er veitt, hvenær og með hvaða veiðarfærum. 

Leggjum kenningar Hafró til hliðar, hættum þessari tilraunastarfsemi með aflamagnið, en höldum áfram að láta Hafró rannsaka, -það skaðar engann.

Leggjum svo af kerfi veiðiheimilda til útvaldra.

Nú fara fleiri sjávarpláss en áður á hliðina.  Hvenær ætli Sjálfstæðisflokknum takist að leggja íslenskan sjávarútveg niður? Sjálfstæðisflokknum er einnig að takast að leggja íslenskan landbúnað í rúst.  Það mætti halda að Sjálfstæðisflokkurinn sé einhver öfgatrúarbragðahópur sem fer um löndin og brýtur niður á augabragði allt það sem þjóðir hafa upp byggt á löngum tíma.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband