Tónlistarnámiđ í betri farveg

Nú hefur menntamálaráđherra, Ţorgerđur Katrín Gunnarsdóttir enn og aftur lýst ţví yfir ađ hún muni sjá til ţess ađ ríkiđ taki yfir menntun tónlistarnema sem eru á framhaldsstigi í tónlist og hyggst hún leggja fram frumvarp til laga á Alţingi um máliđ í vetur.  Ţetta gerđi hún á fundi tónlistarskólastjóra sem haldiđ var á Bifröst í ágúst s.l.  Ber ađ fagna ţessari ákvörđun.

Flest annađ framhaldsnám í landinu er kostađ af ríkinu og ţví ekki óeđlilegt ađ ríkiđ taki á sig kostnađ vegna nemenda á framhaldsstigi í tónlist, enda eru ţeir nemendur í flestum tilfellum ađ mennta sig til atvinnuţátttöku í faginu, sem tónlistarkennarar, hljóđfćraleikarar, tónskáld, tónmenntakennarar, kórstjórar, tónfrćđingar, organistar, einleikarar, einsöngvarar, hljómsveitarstjórar, djass- og dćgurtónlistarmenn, raddţjálfarar, frćđimenn tónlistarsögu, skemmtikraftar, útgefendur kennslubóka í tónlist, stjórnendur óperu- og tónlistarhúsa, upptökustjórar, tónlistarlćknar, hljóđmenn, skipuleggjendur tónlistarviđburđa, hljóđtćknimenn, hljóđfćrasmiđir, útsetjarar, útgefendur tónlistar og skólastjórar.

Tónlistarnámi er samkvćmt námsskrá menntamálaráđuneytisins skipt í ţrú stig; grunnstig, miđstig og framhaldsstig.  Flestir nemendur tónlistarskólanna eru á grunnstigi eđa u.ţ.b. 87%.  Um ţađ bil 13% nemenda ná ađ ljúka grunnprófi, 10% ná aldrei ađ ljúka miđstiginu og einungis 3% komast á framhaldsstig.  Sennilega ţreyta einungis  um 1% nemenda framhaldsstigspróf og ljúka ţar međ almennu tónlistarnámi.  Ţess ber ađ geta ađ framhaldsstigsprófiđ eđa lokapróf úr íslenskum tónlistarskóla er í flestum tilfellum sambćrilegt prófum á háskólastigi.  Margir nemendur á lokastigi náms í almennum tónlistarskóla á Íslandi stunda sambćrilegt nám og nemendur í Listaháskóla Íslands.

Ţessi lög sem menntamálaráđherra bođar munu ađ öllum líkindum renna greiđlega í gegnum ţingiđ.  Ekki er annađ vitađ en ađ allir stjórmálaflokkar styđji ţessa breytingu.  Nú er bara ađ vona ađ menntamálaráđherra láti verkin tala, -eđa láti taliđ verka.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband