Eignabruni?

Fréttamaður Morgunblaðsins kemst réttilega að orði þegar hann kallar minnkandi eigiðfé húsnæðiseigenda eignabruna. En hann ætti að spyrja hver hafi kveikt í, - hver sé orsakavaldur þessa bruna og hvar slökkviliðið sé. Hann gæti einnig kannað hvort eignunum hafi hreinlega verið rænt og að í samfélaginu gangi um ræningjar og hverjir þeir séu.
mbl.is Eignabruni heimilanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það logar enn bjart - verðbólgan er bensín á bálið.

Á meðan bálið logar eru stofnaðir fasteignasjóðir - lífeeyrissjóðir og bankar hirða fasteignir á það sem þeir kalla "tombóluverð" (uppboð og brunaútsala) og græðgin er svo yfirgengileg að þeir keyptu allar eigulegar eignir í hverfum 101 , 105 og 107 í október og nóvember 2012, fyrir 40 miljaraða.

Sömu sjóðir telja þetta afar góða fjárfestingu - vegna þess að það er húsnæðisskortur í þessum sömu hverfum ?

Þá þykir þeim ástæða til að gerast leigusalar á meðan enn brennur þannig að það komist ekki upp hversu mikið þeir hafa grætt á íbúðunum sem þeir hafa hirt af fjölskyldum landsins.

Þessi ógeðfeldu viðskipti eru stunduð á vakt FME og eru að sjálfsögðu ekki talinn siðleg - en svo lengi sem þau eru "lögleg" er engin sem grípur inn.

Manni verður bara bumbullt..

Fríða Guðríður Ásmundardóttir (IP-tala skráð) 9.11.2012 kl. 08:59

2 identicon

Nú þarf almúginn sjálfur að taka ráðin í sínar hendur. Það eru kosningar framundan. Það þarf að sjá raunhæfa lagasetningu í Alþingis - FYRIR kosningar.  Ganga þarf  milli bols og höfuðs á púkunum á fjósbitanum. Moka þarf út úr Alþingisfjósinu og skipa á bása  alveg upp á nýtt ef ekkert gerist á 3 mánuðum. Þá þarf samtakamáttur almúgans að sýna sig, svo ekki fari milli mála. Annars er taflið tapað. 

Almenningur (IP-tala skráð) 9.11.2012 kl. 08:59

3 identicon

Hrúturinn (IP-tala skráð) 9.11.2012 kl. 09:06

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það er svo merkilegt að þessir 400 milljarðar sem eigið fé heimilanna hefur minnkað um er nokkurnveginn sama fjárhæð og áfallnar verðbætur á sama tímabili. Samt hefur húsnæðisverð ekkert hækkað og á frekar inni lækkun ef eitthvað er þar sem húsnæðisbólunni var aldrei leyft að springa.

Guðmundur Ásgeirsson, 9.11.2012 kl. 11:53

5 identicon

Almenningur, ég er sammála þér að almúginn sjálfur þurfi a taka málin sínar hendur og kjósa annað fólk inn á alþingi. En hvað segja nýjustu kannanir? Sjálfstæðisflokkurinn fær yfir 40% og mun mynda ríkisstjórn næst, líklega með Framsókn. Þá höfum við nákvæmlega sömu ríkisstjórn og var hér í 18 ár fyrir hrun. Ekki munu þeir aftengja hina sjálfkrafa vítisvél sem verðtryggingin er. Íslendingar eru með gullfiskaminni og sleikja kvalara sína af miklum móð.

Margret S (IP-tala skráð) 9.11.2012 kl. 18:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband